Viðskipti
| Morgunblaðið
| 20.11.2009
| 5:30
| Uppfært
6:30
Innsláttarvilla hækkaði kröfur margfalt
Heildarkröfur sem Eftirlaunasjóður starfsmannafélags Hafnarfjarðar lýsir í þrotabú Landsbankans nema um það bil 113 milljónum króna. Það er talsvert lægri upphæð en lesa má í kröfuskrá slitastjórnar Landsbankans, en þar kemur fram að heildarkröfur frá sjóðnum nemi yfir þremur milljörðum króna. Þess má geta að heildareignir sjóðins eru um tveir milljarðar króna.
Skýringuna á misræminu er að finna í innsláttarvillu hjá starfsmanni slitastjórnar Landsbankans við úrvinnslu á kröfum í þrotabú bankans. Eitt skuldabréfa Eftirlaunasjóðsins á Landsbankann upp á 17 milljónir króna var óvart fært til bókar sem 17 milljónir evra. Mistökin hafa nú verið leiðrétt.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















