Jón Ásgeir leitaði nýverið eftir aðstoð Walkers
Jón Ásgeir Jóhannesson hefur leitð til Malcolms Walker, forstjóra Iceland keðjunnar, sem var áður í eigu Baugs, eftir aðstoð vegna Haga. Þetta staðfestir Walker við breska blaðið Telegraph, líkt og við Morgunblaðið. Í Telegraph er haft eftir Walker að stutt sé síðan Jón Ásgeir hafði samband við hann og að um litla fjárfestingu væri að ræða.
Átta mánuðum eftir ríflega 200 milljarða gjaldþrot
Í Telegraph kemur fram að einungis átta mánuðum eftir að Baugur óskaði eftir gjaldþrotaskiptum með skuldir upp á 1 milljarð punda, 204 milljarða króna, þá leiti Jón Ásgeir eftir aðstoð hjá Walker. Að sögn Walker er hann að íhuga að aðstoða vin sinn með fjármögnun sem hann þurfði svo á að halda.
Telegraph segir að Jón Ásgeir sé að reyna að safna 35 milljónum punda, rúmum sjö milljörðum króna til þess að tryggja framtíð Haga. Jón Ásgeir hafi ásamt föður sínum, Jóhannesi Jónssyni, keypt Haga af Baugi rétt fyrir hrun, að því er segir í frétt Telegraph.
Var ekki búinn að tala við Walker í sumar
Fyrstu fréttir af leit Jóns Ásgeirs af fjárfestum til að bjarga Högum hafi borist í sumar. Telegraph vísar til þess að íslenskum fjölmiðlum hafi Jón Ásgeir sagt að hann væri með staðfestingu frá þremur breskum fjárfestum að þeir ætluðu að leggja fjármagn í Haga. Þetta hafi verið í ágúst og að hann hafi sýnt staðfestingarnar í bankanum án þess að vilja að nefna nöfn þeirra.
Walker hafi staðfest það við Telegraph í gærkvöldi að Jón Ásgeir hafi leitað eftir hjálp en það hafi verið nýlega. Það sé eitthvað sem hann sé að skoða en einungis í litlu mæli og um einkafjármögnun yrði að ræða. Walker tekur fram að honum hafi alltaf líkað vel við Jón Ásgeir.
Aðrir kaupsýslumenn sem Jón Ásgeir á að hafa fengið til liðs við sig eru Tom Hunter og Don McCarthy, stjórnarformaður House of Fraser . Ekki náðist í McCarthy og talsmaður Hunter segir að ekki hafi verið leitað til hans.



















