Viðskipti
| AFP
| 25.11.2009
| 8:24
ABN Amro hefur tapað 663 milljörðum króna
ABN Amro í Amsterdam Reuters
Hollenski bankinn ABN Amro tapaði einum milljarði evra, 184 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi. Nemur tap bankans á tólf mánaða tímabili, til loka september 3,6 milljörðum evra, 663 milljörðum króna. Bankinn fékk þriggja milljarða evra innspýtingu frá hollenska ríkinu í síðustu viku.
Tap upp á 873 milljónir evra á þriðja ársfjórðungi má rekja til þess hluta ABN Amro sem sem breski bankinn Royal Bank of Scotland (RBS), hefur yfirtekið.ABN Amro bankinn var yfirtekinn árið 2007 af hópi fjárfesta:RBS, Santander og holensk-belgíska bankanum og tryggingafélaginu Fortis. Hollenska ríkið yfirtók hollenska hluta ABN Amro í október í fyrra á sama tíma og Fortis var skipt upp og belgíska og hollenska ríkið greip inn í starfsemi þess félags.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















