Viðskipti
| mbl
| 26.11.2009
| 12:37
Eik Banki segir upp kauphallaraðild
Eik Banki P/F hefur sagt upp aðild sinni að hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar. Uppsögnin tekur gildi 1. janúar nk. Eik Banki verður hins vegar áfram skráð á markað hér á landi, að því er segir í tilkynningu.
Eik Banki Group mun áfram vera þátttakandi á íslenska markaðnum í gegnum dótturfélag sitt, Eik Bank Danmark A/S sem er aðili að bæði hlutabréfa- og skuldabréfamörkuðum Kauphallarinnar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















