Icelandair selur 20% í Travel Service
Icelandair Group gekk í gær frá sölu á um 20% hlut í tékkneska flugfélaginu
Travel Service. Eftir viðskiptin á Icelandair Group um 30% hlut í Travel
Service. Kaupandinn er Canaria Travel sem er eigu í sömu aðila og hafa verið
meðeigendur Icelandair Group í Travel Service.
Við söluna verður Travel Service hlutdeildarfélag Icelandair Group í stað þess að vera dótturfélag. Tap af sölunni nemur 900 milljónum króna og eigið fé lækkar um 1,5 milljarða króna. Heildareignir samstæðunnar lækka um 12 milljarða króna.
Salan tryggir að Icelandair Group þarf ekki að koma að fjármögnun á vexti Travel Service, að því er segir í tilkynningu.
Björgólfur Jóhannsson forstjóri Icelandair Group, segir í fréttatilkynningu: „Sem íslenskt félag sem vinnur að endurskipulagningu efnahagsreiknings eigum við ekki gott með að styðja við fjármögnun erlendra dótturfélaga okkar. Í raun hefur meirihlutaeignaraðild okkar truflað bankaviðskipti Travel Service í Tékklandi.
Travel Service er gott félag og hefur skilað góðum rekstrarárangri en þó er ljóst að rekstrarumhverfi félagsins í vetur verður mjög krefjandi. Við teljum það heppilegast fyrir bæði félög að selja samstarfsaðilum okkar í Tékklandi 20% hlut þannig að Travel Service verði í meirihlutaeigu þeirra.“



















