Kaupum á 51% hlut í Verði lokið
Framkvæmdastjóri Varðar trygginga hf. og Varðar líftrygginga er Guðmundur Jóhann Jónsson. mbl.is/Frikki
Føroya Banki hefur lokið við kaup á 51% hlut í tryggingafélaginu Vörður Tryggingar hf. Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's staðfesti í gær lánshæfismat bankans og metur horfur bankans áfram stöðugar. Lánshæfismat vegna langtímaskuldbindinga er A3, til skemmri tíma P-2, fjárhagslegur styrkur C-.
Fyrir á færeyski bankinn tryggingafélagið Trygd í Færeyjum og sagði í tilkynningu frá bankanum, þegar tilkynnt var um kaupin þann 5. október sl., að með kaupunum sé bankinn að styrkja stöðu sína á tryggingamarkaði. Heildarfjárfesting bankans í Verði Tryggingum eru 1.150 milljónir króna. Gefin voru út ný hlutabréf fyrir 700 milljónir króna, þar af koma 600 milljónir frá Færeyja banka og 100 milljónir frá öðrum hluthöfum.
Núverandi hluthafar, Landsbankinn, SP-Fjármögnun og Byr sparisjóður,
munu áfram styðja við bakið á tryggingafélaginu, samkvæmt tilkynningu
og er ákvæði í kaupsamningnum um að Føroya Banki er með kauprétt á hlut
þeirra í Verði sem væntanlega verður nýttur á fyrri hluta ársins 2012.



















