Ekki fleiri gjaldþrot í tvo áratugi
Flest gjaldþrot verða í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð um þessar mundir. mbl.is/Kristján Kristjánsson
Alls hafa 747 fyrirtæki verið tekin til gjaldþrotaskipta á fyrstu 10 mánuðum ársins sem jafngildir 24,5% aukningu frá sama tímabili í fyrra. Segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka að fjöldi gjaldþrota ekki verið meiri í a.m.k. tvo áratugi, eða eins langt aftur og tölur Hagstofunnar ná.
Spá frekari fjölgun gjaldþrota
Það sem af er ári var aukningin mest á fyrsta þriðjungi ársins en svo tók við tímabil þar sem fjöldi gjaldþrota fyrirtækja var viðlíka eða jafnvel minni en á sama tímabili í fyrra, að því er segir í Morgunkorni Íslandsbanka.
„Í september tók svo gjaldþrota fyrirtækjum að fjölga á ný og voru þau um 65% fleiri en í sama mánuði árið 2008. Má reikna með að mörgum þeirra fyrirtækja sem hafa orðið illa út í efnahagshremmingum síðustu misseri hafi verið haldið uppi af bönkum og koma þannig afleiðingar kreppunnar fram með töf í gjaldþrotatölum.
Ljóst er að fjöldi fyrirtækja er í verulegum greiðsluerfiðleikum en skv. upplýsingum frá Seðlabankanum var um fjórðungur fyrirtækja með lán í vanskilum í lok júní síðastliðinn og sökum þess hve stór hluti útlána til fyrirtækja eru kúlulán er líklegt að tölur um vanskil vanmeti vanda fyrirtækja. Gera má ráð fyrir að gjaldþrotum fyrirtækja haldi áfram að fjölga á næstu mánuðum," að því er segir í Morgunkorni.



















