Viðskipti
| mbl
| 28.11.2009
| 6:12
Frakkar aftur mestu vínframleiðendurnir
Frakkar eru aftur mestu vínframleiðendur heims en Ítalir hafa verið í því hlutverki undanfarin tvö ár.
Samkvæmt upplýsingum frá alþjóðasamtaka vínframleiðenda (OIV) verður afrakstur uppskeru ársins 45,7 milljónir hektólítra í Frakklandi. Er þar um að ræða 9% aukningu frá í fyrra. Magnið nemur sem svarar 17% heimsframleiðslunnar.
Á Ítalíu er hins vegar um 3% samdrátt í ár að ræða og nemur framleiðsla þeirra 45,5 milljónum hektólítra, að sögn OIV.
Að sögn talsmanns OIV hefur kreppan sagt til sín hjá vínframleiðendum. Hægt hafi á framleiðslu í ar og eftirspurn eftir vínum minnkað.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















