Viðskipti
| AFP
| 3.12.2009
| 10:11
LBBW tapaði 835 milljónum evra
Stærsti svæðisbundni banki Þýskalands, Landesbank Baden-Württemberg, (LBBW) tapaði 835 milljónum evra, 153,4 milljörðum króna, á þriðja ársfjórðungi rekstrarársins. Á fyrstu sex mánuðum ársins nam hagnaður bankans 215 milljónir evra. Bankinn tapaði á síðasta ári háum fjárhæðum á lánaviðskiptum við Ísland.
Í tilkynningu kemur fram að rekstrartap bankans hafi numið 103 milljónum evra á tímabilinu júlí-september en rekstrarhagnaður bankans nam 292 milljónum evra á fyrstu sex mánuðum ársins.
LBBW færði 651 milljón evra til bókar sem kostnað vegna endurskipulagningar á þriðja ársfjórðungi auk þess sem bankinn hefur aukið færslur á afskriftarreikning útlána í 1,2 milljarða evra á níu mánaða tímabili.
Í frétt sem birtist í Morgunblaðinu þann 19. ágúst sl. kom fram að LBBW er meðal 25 erlendra fjármálafyrirtækja sem hefur höfðað skaðabótamál á hendur Seðlabanka Íslands vegna yfirtökunnar á SPRON.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















