Slæm rekstarstaða Latabæjar
Viðskiptablaðið segir í dag, að Latibær hafi ekki staðið skil á greiðslum til eigenda óveðtryggðra skuldabréfa að upphæð 26 milljónir Bandaríkjadala. Reynt hafi verið að leysa úr vondri rekstrarstöðu félagsins innan Landsbankans, sem Latibær skuldar tæpar fjórtán milljónir Bandaríkjadala.
Fram kemur í blaðinu að skuldabréfaeigendur ætli að stefna Latabæ fyrir dómi til að fá vangoldnar skuldir greiddar. Verði aðfararbeiðni tekin fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í janúar.
Haft er eftir Magnúsi Scheving, forstjóra Latabæjar, að samningferli standi yfir og búið sé að semja við 92% af öllum skuldabréfaeigendum.
Að sögn Viðskiptablaðsins var sýnilegt tap Latabæjar 36,4 milljónir dala, jafnvirði 4,4 milljarða króna, á síðsta ári, samkvæmt ársreikningi fyrir árið 2008.



















