Viðskiptafélagi Kaupþings í vondum málum
Breski fjárfestirinn Christian Candy, sem hefur ásamt bróður sínum Nick hagnast gífurlega á fasteigna- og verktakastarfsemi, mun þurfa að mæta þriðja ríkasta manni heims, Carlos Slim, í réttarsal í New York vegna deilu sem snýst um framkvæmdir í lúxusíbúðahverfi í Hollywood. Kaupþing átti á sínum tíma hlut í verkefninu.
Hefur banki í eigu Slim, Banco Inbursa, höfðað mál gegn félagi í eigu Candy, CPC, og krefst ríflega 22 milljóna dala í skaðabætur.
Á vef Telegraph segir að svæðið sem um ræðir séu átta ekrur að stærð og auk Kaupþings hafi veitinga- og tískuhúsajöfurinn Richard Caring komið að verkefninu sem gengur undir nafninu „Project Lotus".
Vinna á svæðinu, 9900 Wilshire Boulevard, hefur verið í höndum Candy & Candy, hönnunarfyrirtæki þeirra Candy-bræðra, og stóð til að þar yrðu reistar 235 lúxusíbúðir.
Banco Inbursa lánaði Lotus 356,5 milljónir dala, 44,6 milljarða króna, en lánið var gjaldfellt í október í fyrra eftir að ekki tókst að greiða afborganir af því. Nú krefst mexíkóski bankinn þess að fá greiddar 22,65 milljónir dala í kostnað sem CPC hafi skuldbundið að taka á sig. Því neitar CPC hinsvegar.



















