Dró úr hallarekstri hins opinbera
Tekjuhalli hins opinbera, það er ríkis og sveitarfélaga, var nokkru minni á þriðja ársfjórðungi en á öðrum ársfjórðungi eða 33 milljarðar króna samanborið við 41 milljarð króna.
Samkvæmt upplýsingum frá Hagstofunni var tekjuhallinn 8,4% sem hlutfall af landsframleiðslu 3. ársfjórðungs og sem hlutfall af tekjum hins opinbera 20,4%.
Fyrstu níu mánuði ársins var tekjuhallinn rúmlega 100 milljarðar króna eða 6,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársins, en á sama tíma 2008 var tekjuafkoman jákvæð um 6 milljarða króna, eða 0,4% af landsframleiðslu.
Tekjuhalli ríkissjóðs og almannatrygginga nam 28,5 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi 2009 samanborið við 8,3 milljarða króna tekjuhalla á sama ársfjórðungi árið áður. Á fyrstu 9 mánuðum ársins var tekjuafkoma þessara aðila neikvæð 85,7 milljarða króna samanborið við rúmlega 16 milljarða króna jákvæða afkomu á sama tímabili 2008. Tekjuafkoma sveitarfélaganna var einnig neikvæð á 3. ársfjórðungi eða um 4,1 milljarð króna sem er svipuð afkoma og á sama tíma 2008. Fyrstu níu mánuði 2009 mældist tekjuhalli sveitarfélaganna um 14,5 milljarða króna samanborið við 10 milljarða króna tekjuhalla á sama tímabili 2008.
Hrein peningaleg eign ríkissjóðs, þ.e. peningalegar eignir umfram skuldir, var neikvæð um 441 milljarð króna í lok 3. ársfjórðungs 2009 samanborið við um 24 milljarða króna jákvæða eign á sama ársfjórðungi 2008. Heildarskuldir ríkissjóðs námu 1419 milljörðum króna í lok þessa ársfjórðungs eða sem nam 94,6% af áætlaðri landsframleiðslu ársins. Til samanburðar nam skuld ríkissjóðs 722 milljörðum króna á 3. ársfjórðungi 2008 eða sem svarar 48,9% af landsframleiðslu.



















