Neikvæðar horfur fyrir lánshæfismat Grikklands
Alþjóðlega matsfyrirtækið Standard & Poor's tilkynnti í dag, að lánshæfismat gríska ríkisins hefði verið sett á athugunarlista með neikvæðum horfum. Sagði S&P að hætta væri á að lánshæfiseinkunn Grikklands yrði lækkuð ef stjórnvöld þar gripu ekki til aðgerða vegna vaxandi halla á ríkissjóði og mikilla opinberra skulda.
S&P hefur einnig sett ríkistryggð skuldabréf, sem grískir bankar hafa gefið út, á athugunarlista.
Grikkland er með einkunnina A- hjá S&P og Fitch og A1 hjá Moody's. Er landið með einna lægstu lánshæfiseinkunn þeirra ríkja, sem eru á evrusvæðinu svonefnda.
Standard and Poor's sagði, að ákvörðun yrði tekin um lánshæfiseinkunn Grikklands innan tveggja mánaða þegar meiri upplýsingar liggja fyrir. Núverandi einkunn verði staðfest ef grísk stjórnvöld geti sýnt fram á að aðgerðaáætlun til að vinna bug á skuldasöfnuninni sé trúverðug. Ef ekki kunni einkunnin að lækka í BBB+.



















