Norræn fasteignabóla
Rannsóknafyrirtækið RGE fjallaði um stöðu mála á fasteignamörkuðum Noregs og Svíþjóðar í síðasta mánuði. Miklar hækkanir að undanförnu eru raktar til lágra stýrivaxta í báðum löndunum. Í Svíþjóð hækkaði fasteignaverð um 3% milli annars og þriðja ársfjórðungs og er nú svipað í flestum landshlutum og það var, þegar það náði hæstu hæðum í fyrra. Sömu sögu er að segja af Noregi: Í október hafði fasteignaverð hækkað um 12% á ársgrundvelli og samkvæmt RGE hefur það aldrei verið hærra en um þessar mundir.
Þessar hækkanir eiga sér stað á sama tíma og að áhrif hins alþjóðlega efnahagssamdráttar gætir í ríkum mæli í báðum þessum ríkjum, þó svo að staða Noregs sé með skárra móti. Þetta þýðir að stýrivextir muni áfram verða lágir og það mun styðja við áframhaldandi verðhækkanir.
Norski seðlabankinn var að vísu á dögunum fyrsti seðlabanki í Evrópu til þess að hækka stýrivexti eftir að fjármálakreppan skall á með fullum þunga, en eins og bent er á í umfjöllun RGE eru vextirnir samt sem áður lágir í sögulegu samhengi og ólíklegt er að þeir hækki mikið á næstu misserum vegna stöðu efnahagsmála.
Í Svíþjóð eru stýrivextir 0,25% og vextir á innlánum fjármálastofnana í seðlabankanum beinlínis neikvæðir. Fram hefur komið í yfirlýsingum sænska seðlabankans að ólíklegt er að vextir muni hækka fyrr en í fyrsta lagi næsta haust.



















