Actavis enn með
Höfuðstöðvar Actavis Group í Hafnarfirði. mbl.is/Þorkell
Actavis er enn meðal tilboðsgjafa í þýska samheitalyfjafyrirtækið Ratiopharm, samkvæmt heimildum Reuters fréttastofunnar og bandaríska dagblaðsins Wall Street Journal.
Öll fjárfestingafyrirtæki eru dottin út fyrir utan sænska fyrirtækið EQT. Eignastýringafyrirtæki eins og KKR og Permira ekki lengur meðal tilboðsgjafa. Jafnframt er Goldman Sachs, sem lagði fram óbindandi tilboð ásamt Advent, ekki lengur meðal bjóðenda.
Samkvæmt frétt Reuters voru mörg fjármálafyrirtækin ekki reiðubúin til að greiða þá 2,3 milljarða evra sem farið er fram á fyrir Ratiopharm. Eins áttu þau í erfiðleikum með að útvega nægt fé til að kaupa félagið.
Þau lyfjafyrirtæki sem enn eru meðal tilboðsgjafa eru: Sanofi-Aventis Teva, Mylan, Watson Pharmaceuticals, Pfizer og eitt kínverskt lyfjafyrirtæki.



















