Viðskipti
| mbl
| 9.12.2009
| 8:12
Höfða mál gegn Actavis
Lyfjafyrirtækið Cephalon hefur tilkynnt um að það ætli að höfða mál gegn samheitalyfjafyrirtækinu Actavis Group og dótturfélögum þess fyrir að virða ekki sérleyfi Cephalon á geðlyfinu Nuvigil. Cephalon er með sérleyfi á lyfinu en samkvæmt frétt á vef RTT News hefur Actavis óskað eftir því að fá heimild frá Matvæla og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna á að selja samheitalyf Nuvigil þar í landi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















