Háar kröfur fjármálafyrirtækja í bú Glitnis
Fjármálafyrirtæki, innlend og erlend, hafa mörg gert milljarða kröfur í þrotabú Glitnis banka samkvæmt kröfuskrá sem hefur verið birt. Þá gera mörg bresk sveitarfélög og stofnanir kröfur í bú bankans sem og íslenskir lífeyrissjóðir.
Burlington Loan Management gerir samtals um 145 milljarða króna kröfur í bú bankans. Skilanefnd Landsbankans gerir samtals um 143 milljarða króna kröfu í búið. Glitnir í Lúxemborg gerir 129 milljarða króna kröfu. Þá gerir Royal Bank of Scotland samtals hátt í 140 milljarða króna kröfur og þýski Deka bankinn samtals 85 milljarða kröfur. Centerbridge gerir fjölda krafna í búið samtals upp á tugi milljarða.
Skilanefnd Kaupþings gerir hátt í 80 milljarða króna kröfur í búið. Exista gerir rúmlega 50 milljarða króna kröfur, Íslandsbanki 22 milljarða kröfur, Stoðir 23 milljarða kröfu og Kjalar 16 milljarða kröfu.
Þá má geta þess að Oxford háskóli gerir samtals 2,2 milljarða króna kröfu í búið.



















