Kröfuhafar Atorku samþykkja nauðasamninga
Atorka mbl.is/Golli
Kröfuhafar Atorku Group hf. samþykktu á fundi í dag frumvarp til nauðasamnings fyrir félagið með yfirgnæfandi meirihluta eða yfir 90% atkvæða. Félagið mun í kjölfarið óska eftir staðfestingu Héraðsdóms Reykjaness.
Í október var greint frá því að Atorka hefði ákveðið að leggja fram beiðni til Héraðsdóms Reykjaness um heimild til að leita nauðasamnings. Frumvarp að nauðasamningi gerir ráð fyrir að lánardrottnar umbreyti kröfum í skuldabréf og hlutafé og að endurheimtur kröfuhafa verði a.m.k. 40% en samkvæmt efnahagsreikningi félagsins frá 30. september 2009 verða endurheimtur kröfuhafa ríflega 60%.
Í tilkynningu frá því október segir, að virði skráðra eigna Atorku hefur hækkað umtalsvert á síðustu mánuðum og einnig eru batamerki sjáanleg á rekstri Promens, stærstu eign félagsins. NBI hf., Íslandsbanki hf. og lífeyrissjóðir verða stærstu hluthafar Atorku við samþykkt nauðasamnings, en hlutafé núverandi hluthafa verður fært niður að fullu.



















