Viðskipti
| mbl
| 11.12.2009
| 15:29
58 kaupsamningum þinglýst
Alls var 58 kaupsamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu 4. desember til og með 10. desember 2009. Þar af voru 43 samningar um eignir í fjölbýli, 8 samningar um sérbýli og 7 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 2.237 milljónir króna og meðalupphæð á samning 38,6 milljónir króna.
Á sama tíma var 1 kaupsamningi þinglýst á Suðurnesjum. Það var samningur um sérbýli upp á 30 milljónir króna.
Á sama tíma var 12 kaupsamningum þinglýst á Akureyri. Þar af voru 5 samningar um eignir í fjölbýli, 6 samningar um sérbýli og 1 samningur um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 226 milljónir króna og meðalupphæð á samning 18,8 milljónir króna.
Á sama tíma var 3 kaupsamningum þinglýst á Árborgarsvæðinu. Þar af var 1 samningur um sérbýli og 2 samningar um annars konar eignir en íbúðarhúsnæði. Heildarveltan var 41 milljón króna og meðalupphæð á samning 13,5 milljónir króna, að því er segir á vef Fasteignaskrár Íslands.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















