Þrjú af sex félögum færeysk
Kauphöllin kynnti í dag þær breytingar sem verða á Úrvalsvísitölunni, OMX Iceland 6 vísitölunni, um áramót. Icelandair Group fer út úr vísitölunni en færeyska flugfélagið Atlantic Airways kemur inn í vísitöluna. Vísitalan er
samsett af þeim 6 félögum sem mest viðskipti eru með í Kauphöllinni á Íslandi og um áramót verða jafn mörg færeysk og íslensk félög í vísitölunni.
Samsetning vísitölunnar er endurskoðuð tvisvar á ári og tekur þessi samsetning gildi 4. janúar 2010.
„OMX Iceland 6 vísitalan er Úrvalsvísitala NASDAQ OMX Iceland. Vísitalan er
samsett af þeim 6 félögum sem mest viðskipti eru með á NASDAQ OMX Iceland.
Vísitalan hentar vel sem grunnur fyrir fjármálagerninga af ýmsu tagi og sem
viðmiðunarvísitala fyrir sjóði. Vægi félaga í OMX Iceland 6 vísitölunni ræðst
af flotleiðréttu markaðsvirði og er samsetning hennar endurskoðuð tvisvar á
ári," að því er segir í tilkynningu frá Kauphöllinni.
Eftirfarandi samsetning OMXI6 vísitölunnar verður sem hér segir:
Atlantic Petroleum P/F
Bakkavör Group hf.
Føroya Banki P/F
Marel Food Systems hf.
P/F Atlantic Airways
Össur hf.



















