Afar lítil viðskipti með krónu
Engin viðskipti hafa orðið á millibankamarkaði með gjaldeyri frá því markaðurinn var opnaður í morgun. Fram kemur í Morgunkorni Íslandsbanka, að gengi krónunnar hafi fremur lítið breyst það sem af er síðasta fjórðungi ársins og flökt á gengi evru gagnvart krónu með minnsta móti, þrátt fyrir að inngrip Seðlabankans á gjaldeyrismarkaði hafi engin verið síðan í fyrstu viku nóvembermánaðar.
„Er það athyglisvert í ljósi þess að síðastliðinn fimmtudag var vaxtagjalddagi á ríkisbréfaflokknum RIKB 10 1210, þar sem erlendir fjárfestar áttu ríflega 50 milljarða króna í októberlok samkvæmt Markaðsupplýsingum Lánamála ríkisins. Við teljum að vaxtagreiðslur til útlendinga vegna þessa gjalddaga gætu numið allt að 4 milljörðum en svo miklar vaxtagreiðslur af ríkistryggðum bréfum hafa ekki fallið þeim í skaut í einum mánuði síðan í júní síðastliðnum. Krónan veiktist um hálft prósent á föstudaginn og teljum við útflæði vegna vaxtagreiðslunnar líklega orsök þessa. Evran kostar nú 184 kr. og hefur krónan lækkað um 1,6% gagnvart evru frá upphafi októbermánaðar," segir í Morgunkorni.
Óvirkur aflandsmarkaður
Greining Íslandsbanka segir, að gera megi því skóna að hertar reglur Seðlabankans um færslur króna milli innlendra og erlendra reikninga hafi átt sinn þátt í að aftra frekari veikingu krónu undanfarnar vikur. Frá því gjaldeyrishöftin voru heft með þessum hætti hafi viðskipti á aflandsmarkaði nánast þurrkast upp vegna lítillar eftirspurnar eftir krónum.
Samkvæmt vef Deutsche Bank sé aflandsgengi evrunnar nú á bilinu 270 - 300 kr, eftir því hvort ætlunin er að kaupa eða selja evrur fyrir krónur. Lengst af þessu ári var gengi evru gagnvart krónu hins vegar á bilinu 200-220 krónur á aflandsmarkaðinum.
Segir Íslandsbanki, að í þessu felist að einhverjir þeirra aðila sem áður keyptu krónur á aflandsmarkaði séu nú væntanlega tilneyddir til að eiga þau viðskipti á innlendum gjaldeyrismarkaði, sem létti Seðlabankanum lífið í viðleitni sinni við að ná fram stöðugleika á gengi krónu.



















