Viðskipti
| mbl
| 14.12.2009
| 14:53
Starfsfólk British Airways boðar verkfall
Flugfreyjur breska flugfélagsins British Airways samþykktu með miklum mun í atkvæðagreiðslu, að boðað til 12 daga langs verkfalls yfir jól og áramót til að leggja áherslu á kröfur sínar. Deilur hafa verið lengi milli stjórnar félagsins og starfsmanna um launafrystingu og fækkun starfa.
Verði af verkfallinu kemur það sér mjög illa fyrir félagið en jólin og áramótin eru mikill annatími hjá British Airways.
Viðræður deiluaðila fóru út um þúfur á föstudag. Talsmaður BA, segir við Sky fréttastofuna, að í tilboði félagsins hafi falist 2-7% launahækkun fyrir 75% af starfsmönnunum.
Mikið tap hefur verið á rekstri British Airways á síðasta ári og þessu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















