Samdráttur í fiskafla í nóvember

mbl.is

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum nóvembermánuði, metinn á föstu verði, var 13,2% minni en í nóvember 2008. Það sem af er árinu hefur aflinn aukist um 3,9% miðað við sama tímabil 2008, sé hann metinn á föstu verði.

Að sögn Hagstofunnar var aflinn í nóvember 2009 85.690 tonn samanborið við 117.837 tonn í sama mánuði árið áður.

Botnfiskafli dróst saman um 3600 tonn frá nóvember 2008 og nam tæpum 37.600 tonnum. Þar af nam þorskaflinn rúmum 16.200 tonnum, sem er um 1000 tonnum meira en árið áður. Ýsuaflinn nam tæpum 5300 tonnum sem er um 2900 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Ufsaaflinn stóð nokkurn veginn í stað á milli ára og nam 6300 tonnum. Rúm 4200 tonn veiddust af karfa sem er um 2800 tonnum minni afli en í nóvember 2008.

Afli uppsjávartegunda nam tæpum 45.500 tonnum sem er 29.000 tonnum minni afli en í nóvember 2008. Segir Hagstofan, að sú breyting skýrist  nær alfarið af minni síldarafla. Í nóvember veiddust einnig tæp 1500 tonn af gulldeplu en ekkert var veitt af henni í nóvember 2008.
 
Flatfiskaflinn var 1927 tonn í nóvember 2009 og stóð nokkurn veginn í stað á milli ára. Skel- og krabbadýraafli nam 618 tonnum samanborið við 198 tonna afla í nóvember 2008. Af öðrum afla veiddust 108 tonn af sæbjúgu í mánuðinum.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Skrifstofa Royal Bank of Scotland í Lundúnum.

Grunaðir um skattsvik

Í gær, 14:37 Bresk skattayfirvöld segja fimm starfsmenn Royal Bank of Scotland hafa verið handtekna vegna gruns um skattsvik. Fjórir hinna handteknu starfa enn hjá bankanum en einn hefur látið af störfum. Meira »
Arion banki.

Ekki stefnan að hagnast á verðbólgu

í fyrradag Arion banki hefur á undanförnum árum unnið markvisst að því að draga úr jákvæðum verðtryggingarjöfnuði, og það er ekki stefna hans að hagnast á verðbólgu heldur viðhalda eðlilegum jönfuði á milli verðtryggðra skuldbindinga og eigna bankans. Þetta kemur fram í athugasemd frá bankanum vegna umfjöllunar Morgunblaðsins. Meira »

Verðbólgan er innbyggð í kerfið

í fyrradag Verðstöðugleiki er ekki fyrir hendi í íslenska hagkerfinu sökum þess að verðbólgan er innbyggð í kerfið. Fyrir þessu eru færð rök í fréttabréfi verðbréfafyrirtækisins Júpiter. Meira »

S&P: Egyptaland dýpra í ruslflokkinn

Óeirðir í Egyptalandi koma niður á efnahag landsins.
10.2. Egypska ríkið fékk skell í dag er matsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði lánshæfiseinkunn þess „dýpra niður í ruslflokk,“ líkt og það er orðað í frétt AP. Ótryggt stjórnmálaástand og stöðug átök í landinu eru sögð skýringin. Meira »

Verne Global í samstarf við Opin kerfi

Fyrirtækið Opin kerfi er með höfuðstöðvar við Höfðabakka í Reykjavík.
10.2. Verne Global tilkynnti í gær að það hafi valið Opin kerfi sem samstarfs- og þjónustuaðila til stuðnings við starfsemi sína hér á landi. Verne Global opnaði í vikunni eitt fullkomnasta gagnaver heims að Ásbrú í Reykjanesbæ. Meira »

Lítill áhugi hjá útlendingum

10.2. Svo virðist sem erlendir aðilar hafi verið afar áhugalitlir um þau tvö ríkisbréfaútboð Lánamála sem fóru fram í janúarmánuði. Meira »

Söluferli Iceland Foods framlengt

Iceland Foods.
10.2. Ákveðið hefur verið að framlengja söluferli verslunarkeðjunnar Iceland Foods en tveir fjárfestingasjóðir hafa gert tilboð í hlutafé keðjunnar. Sjóðirnir eru sagðir hafa metið verðmæti keðjunnar í janúar á 1,4-1,5 milljarða punda eða á 271 milljarð íslenskra króna. Meira »

Lækka lánshæfiseinkunn ítalskra banka

10.2. Matsfyrirtækið Standard & Poor's hefur lækkað lánshæfiseinkunn 34 ítalskra banka. Um miðjan janúar lækkaði fyrirtækið lánshæfiseinkunn ítalska ríkisins um tvo punkta. Meira »

Lækkun á Wall Street

Bandarískir hlutabréfamarkaðir hafa lækkað það sem af er degi
10.2. Bandarískar hlutabréfavísitölur hafa lækkað það sem af er degi vegna Grikklands-vandans og minni þenslu í kínversku efnahagslífi. Meira »

Samdrátturinn 17,7%

Gríðarlegt atvinnuleysi er á Spáni og fasteignasala dræm
10.2. Fasteignasala dróst saman um 17,7% á Spáni á síðasta ári og virðist því bati á fasteignamarkaði sem sjáanlegur var árið 2010 á Spáni vera horfinn. Meira »

Vafasöm ákvörðun í upphafi að nota Gillz myndskeið

Alkemistinn mbl 43 Gillz22
10.2. Mikil umræða hefur átt sér stað síðustu vikur um stóra límmiðamálið svokallaða. Stjórnendur Já.is ákváðu þá að framleiða og dreifa límmiðum sem viðskiptamenn þeirra gætu notað til þess að líma yfir mynd á forsíðu símaskráarinnar. Meira »

Litlar breytingar á krónunni

10.2. Eftir umtalsverða veikingu á gengi krónunnar í janúarmánuði hefur lítil breyting orðið þar á það sem af er febrúar.  Meira »

Verðbólgan 2,1% í Þýskalandi

Verðbólgan mælist 2,1% í Þýskalandi
10.2. Verðbólgan mæld á tólf mánaða tímabili var 2,1% í Þýskalandi í síðasta mánuði. Er þetta sama verðbólga og mældist í Þýskalandi, stærsta hagkerfi innan evrusvæðisins, í desember. Meira »

Minni hagnaður hjá Barclays

Barclays bankinn
10.2. Hagnaður breska bankans Barclays dróst saman um 16% á síðasta ári og nam 3 milljörðum punda, 581 milljarði króna.  Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
ISK -   ISK USD - Bandaríkjadalur  USD
EUR - Evra  EUR GBP - Sterlingspund  GBP
CAD - Kanadadalur  CAD DKK - Dönsk króna  DKK
NOK - Norsk króna  NOK SEK - Sænsk króna  SEK
CHF - Svissneskur franki  CHF JPY - Japanskt jen  JPY
Gengi gjaldmiðla

Guðmundur um markaðsmál

mynd Ogilvy um prentauglýsingar.
David Ogilvy er oft kallaður faðir nútíma auglýsingamennsku. Hér verða skoðanir hans á því hvernig hægt er að ná hámarks árangri með prentauglýsingum Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir