Líkur á frekari verðlækkun á fasteignum
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu hefur lækkað um um 11,1% að nafnvirði síðustu 12 mánuði en um 21% að raunvirði m.v. vísitölu neysluverðs án húsnæðis. Er gildi vísitölu íbúðaverðs nú það sama og það var í júní árið 2006 en að raunvirði þá er íbúðaverð viðlíka og það var í árslok 2004. Greining Íslandsbanka telur að enn séu líkur á frekari lækkun fasteignaverðs þrátt fyrir að mesta lækkunin sé væntanlega yfirstaðin.
Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 1,5% milli október og nóvember samkvæmt upplýsingum sem Fasteignaskrá Íslands birti í gær. Þetta er mesta lækkun á íbúðaverði á höfuðborgarsvæðinu milli mánaða sem orðið hefur síðan í apríl síðastliðnum en þá lækkaði íbúðaverð um 2,6% frá fyrri mánuði.
Raunlækkun 35,4% frá því í byrjun síðasta árs
Í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka kemur fram að lækkun íbúðaverðs komi ekki á óvart í ljósi þeirra efnahagsaðstæðna sem nú ríkja í hagkerfinu og reikna megi með að verð íbúða komi til með að gefa enn meira eftir.
„Endurspegla væntingar um frekari lækkanir bæði ástand á framboðs- og eftirspurnarhlið markaðarins. Hin mikla uppsveifla undanfarinna ára á íbúðamarkaði hefur orðið til þess að nú þegar ládeyða hefur verið á þessum markaði situr eftir mikill fjöldi óseldra íbúða á framboðshlið markaðarins sem skapar frekari þrýsting til verðlækkunar. Við þetta ástand bætist við mikið og vaxandi atvinnuleysi svo og minnkandi ráðstöfunartekjur heimilanna, þá m.a. vegna þeirra skatthækkana sem fyrirhugaðar eru í byrjun næsta árs. Jafnframt geta væntingar um að íbúðaverð komi til með að lækka meira dregið enn frekar úr eftirspurninni, sér í lagi eftir stærri eignum.
Nú hefur íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkað um 13,5% að nafnvirði frá því að það náði toppi í byrjun síðasta árs en um 35,4% að raunvirði. Opinberar spár gera ráð fyrir að íbúðaverð muni lækka um 50% að raunvirði frá því að hápunktinum var náð áður en yfirstandandi lægð lýkur á fasteignamarkaði. Samkvæmt því mati er enn umtalsverð lækkun húsnæðisverðs í pípunum þó að mesta lækkunin sé að öllum líkindum yfirstaðin," að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.


















