Ríkið og Landsbanki Íslands sömdu
Í október var skrifað undir samkomulag á milli íslenskra stjórnvalda, skilanefndar Landsbanka Íslands og Nýja Landsbankans (NBI) um uppgjör á eignum og skuldum vegna skiptingar bankans.
Samkvæmt því var gert ráð fyrir að NBI gefi út skuldabréf til gamla bankans að fjárhæð 260 milljarðar króna til 10 ára. Skuldabréfið sé gengistryggt og tryggi Landsbankanum þannig erlenda fjármögnun. Þá er gert ráð fyrir að gefin verði út hlutabréf til gamla bankans að fjárhæð 28 milljarðar króna sem svarar til um 20% heildarhlutafjár NBI.
Samkvæmt samkomulaginu frá í október verður eignarhlutur ríkissjóðs í NBI ekki lægri en
80% en gæti orðið töluvert hærri ef efnahagsþróun reynist hagstæð fram
til loka ársins 2012 sem yrði til þess að nýi bankinn gæfi út
viðbótarskuldabréf.



















