Ótrygg staða Cimber Sterling
Staða danska lággjaldaflugfélagið Cimber Sterling, sem keypti hluta af rekstri og flugflota flugfélagsins Sterling eftir að það varð gjaldþrota á síðasta ári, virðist nokkuð ótrygg. Félagið var skráð í dönsku kauphöllina um mánaðamótin en á fimmtudag lækkaði gengi hlutabréfa félagsins um nærri 32%. Í síðustu viku lækkaði gengi bréfanna um 38%.
Alls lækkaði markaðsvirði Cimber Sterling um 159 milljónir danskra króna en það var 430 milljónir danskra króna í byrjun vikunnar.
Á fréttavef Børsen er haft eftir Caspar Rose, lektor hjá viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn, að margt bendi til þess að flugfélagið hafi málað of jákvæða mynd af stöðu sinni í útboðsgögnum áður en bréfin voru skráð á markað.
Útboðsgengi Cimber Sterling var 10 krónur danskar en það er nú 6 krónur. Félagið hafði vonast til þess að gengið yrði 20-24 krónur við skráningu.



















