Fleiri mál Sports Direct til rannsóknar
Mál bresku íþróttavörukeðjunnar Sports Direct, sem Mike Ashley stýrir, hefur verið vísað til breska fjármálaeftirlitsins en það snýr að yfirtöku á keppinaut. Samkvæmt heimildum breska blaðsins Times á Sports Direct að hafa brotið reglur eftirlitsins við yfirtökuna.
Er það Blacks Leisure sem hefur vísað málinu til fjármálaeftirlitsins en Ashley er til rannsóknar hjá efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), vegna mála tengdum Kaupþing og hjá stofnun sem skoðar hvort um eðlilega viðskiptahætti sé að ræða, Office of Fair Trading (OFT)
Samkvæmt heimildum Times þá kvartaði Blacks yfir því hvernig Sports Direct reyndi að ná yfirhöndinni í fyrirtækinu án þess að tilkynna til kauphallarinnar um að það hefði misst yfirráðin yfir tæplega 30% hlut í félaginu.



















