Viðskipti
| mbl
| 21.12.2009
| 12:19
| Uppfært
12:38
Með nýtt tilboð í SAAB
Hollenski bílaframleiðandinn Spyker hefur lagt fram nýtt tilboð í sænska bílaframleiðandann Saab en viðræður Spyker og General Motors, móðurfélags Saab, fóru út um þúfur fyrir helgi og í kjölfarið tilkynnti GM að framleiðslu Saab yrði hætt.
Gengi hlutabréfa Spyker hækkaði um 30% í kauphöllinni í Amsterdam í morgun eftir að fréttist af þessu tilboði.
Sænsk stjórnvöld og fulltrúar verkalýðsfélaga ætla að ræða saman í dag um málið en sérfræðingar hafa látið í ljós efasemdir um að mikið sé á bak við nýja tilboðið. Það á að renna út klukkan 22 í kvöld.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















