Vöxtur í Danmörku
Danske bank. mbl.is/GSH
Danska hagkerfið óx um 0,6% á þriðja ársfjórðungi samanborið við fjórðunginn á undan. Þetta kom hagfræðingum á óvart en þeir höfðu gert ráð fyrir samdrætti. Miðað við þriðja ársfjórðung á síðasta ári mælist þó 5,2% samdráttur í vergri landsframleiðslu.
Samneysla dróst saman um 7,2% miðað við sama tímabil í fyrra og um 2,6% miðað við annan ársfjórðung. Er þetta mesti samdráttur á þessu sviði sem danska hagstofan hefur mælt.
Danske Bank spáir því nú, að hagvöxtur á næsta ári verði 1,6%. Bankinn reiknar með því að atvinnuleysi haldi áfram að aukast og að árið 2011 verði 160 þúsund Danir án atvinnu; nú eru þeir 103 þúsund.
Danske Bank telur, að verð á fasteignamarkaði sé komið í botn og muni nú fara hækkandi, m.a. vegna mjög lágra vaxta.



















