Sex go-kart bílar í eigu Milestone
Meðal eigna þrotabús Milestone, fjárfestingarfélags bræðranna Karls og Steingríms Wernerssona, voru sex go-kart bílar, Mercedes-Benz flutningabíll og aftanívagn auk billjardborðs. Uppsafnaður geymslukostnaður á þessum eignum varð til þess að búið fékk aðeins eina milljón króna fyrir bílana og kerruna þegar þau voru seld.
Kemur þetta fram í skýrslu skiptastjóra Milestone. Þá fengust 11,6 milljónir króna fyrir tvær Mercedes Benz fólksbifreiðar, sem voru í eigu félagsins.
Þrotabúið á nokkrar kröfur á viðskiptavini og samstarfsaðila Milestone í Makedóníu, en félagið á enn 92 prósenta hlut í makedóníska bankanum Stater Banka. Kröfur á þessa aðila nema að minnsta kosti um 320 milljónum króna og er unnið að innheimtu krafnanna.
Kröfur í þrotabúið nema alls um 100 milljörðum króna, en enn er mjög óljóst hvað mikið fæst upp í þær kröfur.
Kostnaður við skiptin frá 18. september til 14. desember nemur alls um 24 milljónum króna. Þar af er þóknun Landslaga um 6,8 milljónir og endurskoðunarskrifstofunnar Ernst & Young um 7,8 milljónir króna.



















