Þrjú tilboð í Skeljung
mbl.is
Þrjú skuldbindandi tilboð með fyrirvörum bárust til fyrirtækjaráðgjafar Íslandsbanka í 49% hlut í Skeljungi hf. og tengdum félögum. Tilboðin voru opnuð í gær í viðurvist Sigurðar Páls Haukssonar, löggilts endurskoðanda, sem var tilnefndur sem óháður matsaðili.
Söluferlið var opið öllum áhugasömum fjárfestum sem uppfylltu skilyrði til þess að geta talist fagfjárfestar samkvæmt lögum, einstaklingum sem hafa verulegan fjárhagslegan styrk og viðeigandi þekkingu, auk fyrirtækja sem höfðu eiginfjárstöðu sem var hærri en sem nemur 100 milljónum króna í árslok 2008.
Íslandsbanki segir, að öllum þremur tilboðsgjöfum verði gefinn kostur á áframhaldandi þátttöku í söluferlinu og veittur aðgangur að nánari upplýsingum um starfsemi og fjárhag fyrirtækisins. Stefnt er að því að bindandi tilboð án fyrirvara berist í byrjun febrúar 2010.



















