Viðskipti
| mbl
| 4.1.2010
| 13:54
SAS selur 18 flugvélar
Norræna flugfélagið SAS hefur selt bandaríska fyrirtækinu Allegiant Travel Company átján farþegaflugvélar af gerðinni MD-80. SAS segir að við þetta muni skuldir félagsins minnka um 200 milljónir sænskra króna, jafnvirði 3,5 milljarða íslenskra króna.
Allt eru þetta flugvélar, sem SAS tók í notkun á árunum 1985 til 1991. Verða vélarnar afhentar nýjum eiganda á fyrri hluta þessa árs Allegiant hefur áður keypt 13 slíkar vélar af SAS.
Eftir söluna er SAS með 191 flugvél í rekstri, þar af 24 MD-80 vélar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















