Biðst afsökunar á verstu viðskiptum aldarinnar
Höfuðstöðvar AOL Time Warner í New York eftir sameiningu. AP
Jerry Levin, fyrrverandi forstjóri bandaríska fjölmiðlafyrirtækisins Time Warner, hefur beðist afsökunar á því að hafa staðið fyrir verstu viðskiptum síðustu aldar.
Það gerðist þegar hann seldi Times Warner fyrr réttum tíu árum og fékk á móti hlutabréf fyrir 164 milljarða dala í fyrirtækinu America Online, en gengi þeirra bréfa hafði hækkað mjög mikið í svonefndri netbólu undir lok síðustu aldar. Rekstur AOL gekk hins vegar illa og gengi bréfanna hrundi sem leiddi til þess, að hluthafar Time Warner töpuðu miklu fé.
„Ég stóð fyrir verstu viðskiptum aldarinnar og ég tel tímabært að fólk sem tengist fyrirtækjum standi upp og segi: Ég er einn ábyrgur fyrir þessu," sagði Levin við CNBC sjónvarpsstöðina.
„Ég bar ábyrgðina. Mér þykir afar leitt að hafa valdið þessum sársauka og tjóni. Ég axla ábyrgð á því."
Levin og kona hans reka nú meðferðarstöð í Santa Monica í Kalíforníu.



















