Viðskipti
| mbl
| 6.1.2010
| 23:09
| Uppfært
7.1.2010
5:12
Missa líklega hlutinn í Exista
Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir missa líklega hlut sinn í Exista. Brynjar Gauti
Lýður og Ágúst Guðmundssynir munu líklega missa hlut sinn í Exista, að því er Viðskiptablaðið greinir frá. Blaðið segir að bræðurnir eigi möguleika á eignarhlut í Bakkavör ef því fyrirtæki gengur vel.
Þá segir Viðskiptablaðið að fjárhagsleg endurskipulagning Exista sé á lokastigi og að stefnt sé að því að leggja fram nauðasamninga í febrúar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















