FME veitir ISB Holding leyfi

stækka

mbl.is/Golli

Fjármálaeftirlitið hefur veitt ISB Holding ehf. leyfi til að fara með virkan eignarhlut í Íslandsbanka fyrir hönd Glitnis banka hf. Leyfið er veitt í kjölfar samnings Glitnis og íslenska fjármálaráðuneytisins frá 13. september sl., þess efnis að Glitnir gæti eignast 95% hlut í Íslandsbanka að uppfylltum ákveðnum skilyrðum.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá FME. Þar segir ennfremur:

„Afstaða Fjármálaeftirlitsins til þess hvort Glitnir, sem er í greiðslustöðvun og slitameðferð, væri  hæfur til að fara með virkan eignarhlut í fjármálafyrirtæki var neikvæð. Fjármálaeftirlitið tók þó fram að vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem leiddu til samkomulagsins, og vegna þess að það felur í sér sátt á milli aðilanna um rekstur Íslandsbanka sem ætla má að stuðli að stöðugleika á fjármálamarkaði, kæmi til álita að kanna hvort umsækjandi gæti gripið til ráðstafana sem dygðu til að takmarka óæskileg áhrif eignarhaldsins, sbr. 43. gr. l. nr. 161/2002 um fjármálafyrirtæki. Niðurstaðan var sú að veita leyfið með skilyrðum um afgerandi ráðstafanir er lúta að fjárhagslegum styrk umsækjanda, eignarhaldi bankans, eftirlitshagsmunum og stefnumiðum eigenda.

Fjárhagslegur styrkur umsækjanda skal tryggður með aðgangi að sérstökum viðbragðssjóði sem grípa má til ef Íslandsbanki mætir verulegu andstreymi í rekstri. Var fjárhæð sjóðsins metin af Íslandsbanka að undirlagi Fjármálaeftirlitsins á grundvelli samræmdrar aðferðafræði sem þróuð var innan ramma úttektar Fjármáleftirlitsins á nýju bönkunum í maí 2009.

Eignarhald bankans skal vera í höndum sérstaks dótturfélags Glitnis (ISB Holding), sem lýtur stjórn sem er að meirihluta skipuð stjórnarmönnum óháðum Glitni, stórum kröfuhöfum og Íslandsbanka sjálfum. Er skilanefnd Glitnis gefinn kostur á að tilnefna einn fulltrúa sinn í þriggja manna stjórn ISB Holding, en hinir tveir, þ.m.t. stjórnarformaður, skulu vera óháðir. Útnefning allra stjórnarmanna eignarhaldsfélagsins er háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og skulu þeir uppfylla kröfur þess, m.a. um þekkingu og reynslu af fjármálastarfsemi.

Stjórn ISB Holding fer með atkvæðisrétt þann sem Glitnir öðlast í Íslandsbanka og  útnefnir stjórnarmenn bankans. Kveða skilyrði Fjármálaeftirlitsins einnig á um það að af stjórnarmönnum bankans sjálfs skuli skilanefnd aðeins hafa einn fulltrúa, en aðrir skuli vera óháðir, þ.m.t. stjórnarformaður. Með því er átt við að þeir starfi hvorki í umboði einstakra eigenda eða kröfuhafa, né séu bundnir þeim eða bankanum sjálfum nokkrum hagsmunatengslum. Í sérstökum umboðssamningi milli ISB Holding og Glitnis tekst Glitnir á hendur að virða sjálfstæði stjórnar fyrrnefnda félagsins og skyldur hennar til að stuðla að heilbrigðum og traustum rekstri Íslandsbanka án utanaðkomandi íhlutunar. Er stjórn ISB Holding gert skylt að gefa skýrslu um framkvæmd þessarar stefnu til Fjármálaeftirlitsins ársfjórðungslega.

Til að greiða fyrir eftirliti er Glitni gert að færa eignarhald á öllum dótturfélögum sem hafa með höndum fjármála- og vátryggingarstarfsemi í eitt móðurfélag. Þessu hlutverki gegnir 100% dótturfélag Glitnis, Glitnir eignarhaldsfélag ,sem því er um leið móðurfélag ISB Holding.

Stefnumiðum eigenda eru settar skorður með því að áskilja tilteknar kvaðir á viðskipti við tengda aðila, arðgreiðslur út úr Íslandsbanka og sölu hluta í Íslandsbanka  næstu  þrjú ár. Glitni ber þannig að tilkynna fyrirfram um fyrirhuguð eigendaskipti hluta í Íslandsbanka eða ISB Holding til Fjármálaeftirlitsins. Þegar slík tilkynning berst mun fara fram endurnýjað hæfismat á væntanlegum eigendum af hálfu Fjármálaeftirlitsins, svo fremi eignarhaldið feli í sér áhrif á stjórn bankans.

Áður hafði Fjármálaeftirlitið kynnt fyrir nýju bönkunum þremur eftirlitskröfur sínar. Þær byggjast á gagngerri úttekt á rekstrarhæfni þeirra miðað við eignasamsetningu, fjármögnun og líklegar efnahagshorfur, sem gerð var í maí sl. Fela kröfurnar m.a. í sér 16% eiginfjárlágmark í stað 8% áður, viðbúnað til að standast nýtt álagspróf sem miðast við óhagstæða efnahagsþróun um lengri tíma en almennt er vænst og strangari kröfur til lausafjárstyrks en verið hefur. Auk þess er það gert að skilyrði fyrir starfsleyfi  nýju bankanna að þeir hrindi í framkvæmd ítarlegri áætlun um endurbætur á áhættustýringu og stjórnarháttum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Viðskipti »

Í Flatey á Mýrum í Austur-Skaftafellssýslu er rekið stærsta kúabú landsins. Búið var auglýst til ...

Tekur þrjú ár að selja 45 jarðir

18:27 Landsbankinn reiknar með að það taki um þrjú ár að ljúka sölu á öllum jörðum í eigu jarðafélagsins Lífsvals, en félagið á um 45 jarðir. Bankinn hefur auglýst 20 þeirra til sölu um helgina, m.a. stærsta kúabú landsins. Meira »
Verslun Moss Bros í Oxford Street.

29% hlutur í Moss Bros seldur

16:19 Tæplega þriðjugur hlutafjár í karlmannafataversluninni Moss Bros hefur skipt um hendur, en fyrirtækið var um tíma í eigu Baugs. Meira »

Býr sig undir hugsanlegt hrun evrunnar

15:50 Englandsbanki hefur hafið undirbúning fyrir það ef til þess kemur að evrusvæðið liðist í sundur að meira eða minna leyti. Meðal þeirra ráða sem bankinn hyggst grípa til ef á þarf að halda er að lækka vexti og frekari magnslökun. Meira »

58 skjölum um atvinnuhúsnæði þinglýst

10:53 Í apríl síðastliðnum var 58 skjölum (kaupsamningum og afsölum) um atvinnuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu þinglýst og 48 utan þess. Heildarfasteignamat seldra eigna á höfuðborgarsvæðinu var 9.056 milljónir króna en 631 milljón króna utan þess. Af þessum samningum voru 16 um verslunar- og skrifstofuhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu. Meira »

9,8% samdráttur í vörusölu á Spáni

Fólk mótmælir niðurskurði á Spáni.
10:07 Vörusala á Spáni dróst saman um 9,8% í apríl, borið saman við sama mánuð í fyrra. Samdrátturinn er mun meiri en reiknað hafði verið með. Þetta er 22. mánuðurinn í röð þar sem vörusala dregst saman á Spáni. Meira »

Hækkun á mörkuðum í Asíu

Hækkun varð í kauphöllinni í Tókýó í Japan dag.
08:28 Hækkun varð á mörkuðum í Asíu annan daginn í röð. Er hækkunin m.a. rakin til aukinnar bjartsýni um að Grikklandi haldi áfram evrusamstarfinu. Meira »

Væntingar vaxa lítillega í maí

Væntingar aukast með hækkandi sól.
11:16 Væntingar íslenskra neytenda jukust lítillega í maímánuði, en væntingavísitala Gallup, sem Capacent Gallup birti í morgun, hækkaði um tvö stig frá fyrri mánuði og mælist nú 73,3 stig. Meira »

Lægri verðbólga vegna lægra orkuverðs

Olíuverð hefur stuðlað að lægri verðbólgu.
10:29 Lægra orkuverð hefur stuðlað að lækkun verðbólgu í löndum OECD. Verðbólga í 34 aðildarlöndum OECD mældist 2,7% í mars. Verðbólga minnkaði mest í Bandaríkjunum, Kína og Bretlandi. Meira »

Innsýn í reksturinn

Fjölmiðlavaktin undir eigin vörumerki

Fréttamiðlun og samfélagsumræða hefur í auknum mæli flust yfir á netið.
09:54 Fjölmiðlavaktin, sem stofnuð var árið 1980, hefur undanfarin ár verið rekin undir merkjum Creditinfo en starfar nú á ný undir eigin vörumerki. Engar breytingar hafa þó orðið á eignarhaldi. Meira »

Yfirtekur rekstur sjóða rekstrarfélags Byrs

í gær Íslandssjóðir hf., dótturfyrirtæki Íslandsbanka, hefur yfirtekið rekstur verðbréfa- og fjárfestingarsjóða rekstrarfélags Byrs í framhaldi af sameiningu Íslandsbanka og Byrs. Meira »

Raunhæft að ríkið greiði sér brátt arð úr bönkunum

26.5. Þrátt fyrir að það megi teljast raunhæft að ríkið geti bráðlega greitt sér út arð úr bönkunum er hins vegar mikilvægt að þeir fjármunir verði nýttir annaðhvort til að greiða niður skuldir ríkisins eða til fjárfestinga í verkefnum með sambærilega arðsemiskröfu og Bankasýsla ríkisins gerir til þeirra banka sem ríkið á eignarhlut í. Meira »

Spænsk hlutabréf ekki lægri í níu ár

Mariano Rajoy, forsætisráðherra Spánar, hefur í dag reynt að róa fjárfesta.
í gær Hlutabréfavísitala á Spáni lækkaði um 2,17% í dag en hún hefur ekki verið lægri í níu ár. Ástæðan er ótti fjárfesta við afleiðingar hruns Bankia, fjórða stærsta banka Spánar. Meira »

Grikkir uppiskroppa með fé í júní

Lucas Papademos, fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands.
27.5. Fyrrverandi forsætisráðherra Grikklands, Lucas Papademos, varar við því að ef Grikkir fái ekki frekari fjárhagsaðstoð frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum verði þeir orðnir uppiskroppa með fjármuni í lok júní. Meira »

Tap af rekstri OR nam 4 milljörðum

25.5. Rekstrarhagnaður (EBIT) Orkuveitu Reykjavíkur varð 4,9 milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi 2012. Það er afkomubati fyrir fjármagnsliði og skatta um liðlega 42% frá sama tímabili 2011. Ytri þættir – þróun álverðs og gengi krónunnar – voru heildarafkomunni áfram óhagstæðir. Tap af rekstri OR á tímabilinu nam 3.998 milljónum kr. Meira »

Svipaðar fréttir

Mynt Fjárhæð Mynt Fjárhæð
  ISK   USD
  EUR   GBP
  CAD   DKK
  NOK   SEK
  CHF   JPY
Gengi gjaldmiðla

Sigurður Már Jónsson

mynd Ferðamennska til fjár
Fyrstu fjóra mánuði ársins fjölgaði erlendum ferðamönnum sem hingað koma um 20% sé miðað við síðasta ár. Það er staðfesting á þeim gríðarlega vexti Meira

Frosti Sigurjónsson

mynd Afnám hafta: Umræður á Alþingi
Afnám gjaldeyrishafta er afar mikilvægt úrlausnarefni stjórnvalda sem hefur verið furðu lítið rætt í Alþingi. Svo bar þó við að málið komst á dagskrá Meira

Már Wolfgang Mixa

mynd Vísitala fjármálalæsis á Íslandi fellur
Stofnun um fjármálalæsi og sálfræðisvið viðskiptadeildar Háskólans í Reykjavík birtir fimmtudaginn 3. maí rannsókn þar sem þekking, viðhorf og hegðun Meira

Bjarni Gylfason

mynd Iðjusemi jafngildir ekki aukinni framleiðni
Þrátt fyrir djúpa kreppu síðustu ár verður ekki litið framhjá þeirri mikilvægu staðreynd að hagþróun hér á landi undanfarna áratugi hefur að jafnaði Meira

finnur.is

Erlendar viðskiptafréttir