Viðskipti
| mbl
| 8.1.2010
| 8:46
Tvö félög vilja kaupa Saab
Stjórn bandaríska bílaframleiðandans General Motors mun á fundi í dag fjalla um framtíð sænska bílaframleiðandans Saab Automobiles, dótturfélag GM. Búið var að lýsa því því yfir að Saab yrði lokað en síðustu daga hafa að minnsta kosti tvö félög lýst áhuga á að kaupa sænska fyrirtækið.
Hollenski sportbílaframleiðandinn Spyker, sem átti í viðræðum við GM um yfirtöku á Saab, er sagður ætla að leggja inn enn eitt tilboðið í dag.
Þá er fjárfestingarfélagið Genii Capital, sem skráð er í Lúxemborg, einnig sagt hafa lýst áhuga á að leggja fram tilboð í samvinnu við Bernie Ecclestone, aðaleigandi Formúlu 1. Ecclestone staðfestir þetta við Bloomberg fréttastofuna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















