Afkoma Alcoa undir væntingum
Álver Alcoa Fjarðaáls í Reyðarfirði. mbl.is/ÞÖK
Tap sem nam 277 milljónum dala, jafnvirði 34,5 milljörðum króna, var af rekstri bandaríska álfélagsins Alcoa Inc, eiganda álversins í Reyðarfirði, á síðasta fjórðungi ársins 2009. Ef undan voru skildin tiltekin útgjöld var hagnaður 1 sent á hlut en sérfræðingar á Wall Street höfðu spáð 6 senta hagnaði á hlut.
Tap á rekstri Alcoa var hins vegar 1,19 milljarðar dala á sama tímabili á árinu 2008. Sölutekjur drógust saman um 4,5% milli ára og námu 5,43 milljörðum dala.
Sérfræðingar segja, að lækkandi gengi dals gagnvart evru brasilíska gjaldmiðlinum og hækkandi raforkuverð hafi haft áhrif á afkomuna. Á móti kom að álverð hækkaði um 18% í fjórðungnum og fór í 2230 dali tonnið.
Alcoa er jafnan fyrsta fyrirtækið í Down Jones vísitölunni sem birtir árshlutauppgjör. Gengi bréfa félagsins lækkaði lítillega eftir að tölurnar birtust en gengi bréfa Alcoa hækkaði um 43% á síðasta ári.



















