Eign lífeyrissjóðanna jókst í desember
Hrein eign lífeyrissjóðanna til greiðslu lífeyris var 1.763 milljarðar króna í lok nóvember síðastliðins og hafði aukist um 18,8 milljarða í mánuðinum samkvæmt tölum Seðlabankans. Þar af jókst innlend verðbréfaeign um 21,5 milljarða króna og erlend verðbréfaeign um 3,1 milljarða.
Í Morgunkorni Íslandsbanka segir að í lok nóvember 2009 hefur hrein eign lífeyrissjóðanna hækkað um 140 milljarða frá sama tíma fyrir ári sem jafngildir hækkun upp á 8,6% að nafnvirði. Sé hins vegar tekið tillit til verðbólgu þá er staðan óbreytt.
Er hrein eign
lífeyrissjóðanna að nafnvirði nú hægt og bítandi að nálgast það sem hún var fyrir
hrun bankanna. Þannig var hrein eign lífeyrissjóðanna í lok nóvember
7,9 milljörðum lægri en hún var í lok september 2008 sem jafngildir
0,4% lækkun að nafnvirði. Lækkunin að raunvirði á þessu tímabili er þó
mun meiri, eða 11,8%.
Sjóðir og bankainnistæður lífeyrissjóðanna lækkuðu um 6,5 milljarða í mánuðinum. Af einstökum eignaliðum munar mestu um 10,3 milljarða króna hækkun á íbúðabréfaeign sjóðanna sem endurspeglar hækkun á vísitölu neysluverðs á haustdögum, lækkun ávöxtunarkröfu verðtryggðra bréfa í nóvembermánuði og hugsanlega einnig kaup lífeyrissjóða á íbúðabréfum.



















