Fiskafli dróst saman í desember
mbl.is
Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum desembermánuði, metinn á föstu verði, var 10,3% minni en í desember 2008, að sögn Hagstofunnar. Árið 2009 jókst aflinn um 2,9% miðað við árið 2008, sé hann metinn á föstu verði.
Aflinn í desember 2009 var 57.635 tonn samanborið við 85.639 tonn í sama mánuði árið áður.
Botnfiskafli stóð í nokkurn veginn stað frá desember 2008 og nam tæpum 33.200 tonnum. Þar af nam þorskaflinn tæpum 14.800 tonnum, sem er um 2700 tonna aukning frá árinu áður. Ýsuaflinn nam tæpum 4200 tonnum sem er um 1800 tonnum minni afli en í desember 2008. Ufsaaflinn dróst saman um tæp 1200 tonn og nam rúmum 5500 tonnum. Um 3900 tonn veiddust af karfa sem er 1100 tonnum minni afli en í desember 2008.
Afli uppsjávartegunda nam tæpum 22.600 tonnum sem er um 28.000 tonnum minni afli en í desember 2008. Hagstofan segir, að sú breyting skýrist af 34.300 tonnum minni síldarafla frá árinu áður, en í desember veiddust einnig um 6100 tonn af gulldeplu. Nær ekkert var veitt af henni í desember 2008.
Flatfiskaflinn var rúm 1500 tonn í desember 2009 samanborið við 2000 tonna afla í desember 2008. Skel- og krabbadýraafli nam 229 tonnum í desember 2009.



















