Viðskipti
| mbl
| 14.1.2010
| 17:57
Danir lækka vexti
Danski seðlabankinn lækkaði stýrivexti sína um 0,1 prósentu og eru vextirnir þá 1,05%. Þessi lækkun kom flestum í opna skjöldu en stýrivextir hafa aldrei verið jafn lágir og nú í Danmörku.
Danski seðlabankinn segir, að ástæðan fyrir vaxtalækkuninni sé að undanfarið hafi átt sér stað mikil kaup á gjaldeyri. Skammtímavextir á evru séu enn mjög lágir og munurinn á þeim og dönsku vöxtunum geri það að verkum að gengi dönsku krónunnar sé að styrkjast.
Í síðustu viku voru vextir danska bankast lækkaðir um 0,05 prósentur.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















