Viðskipti
| mbl
| 14.1.2010
| 22:30
Hagnaður Intel eykst
Hagnaður bandaríska örgjörvaframleiðandans Intel Corp. nam 2,28 milljörðum dala á fjórða ársfjórðungi ársins, samanborið við 234 milljóna dala hagnað á sama tímabili fyrir ári. Fyrirtækið segir útlitið gott fyrir fyrri hluta þessa árs. Þessar fréttir urðu til að lyfta hlutabréfaverði í kauphöllinni á Wall Street.
Tekjur félagsins námu 10,57 milljörðum dala og jukust um 28%.
Dow Jones hlutabréfavísitalan hækkaði um 0,28% í dag og var 10.710 stig, hefur ekki verið hærri síðan 1. október 2008. Nasdaq vísitalan hækkaði um 0,38% og er 2316.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















