Kynjakvóta ekki í lög
Samtök atvinnulífsins leggjast alfarið gegn því að kynjakvótar á stjórnir fyrirtækja verði bundnir í lög, að því er fram kemur í frétt á vef samtakanna.
Samtök atvinnulífsins hvetja eigendur og stjórnendur fyrirtækja til að nýta vel þau tækifæri sem gefast á komandi vikum, mánuðum og misserum til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins. Framundan er fjöldi aðalfunda þar sem tækifæri gefast til að auka hlut kvenna í atvinnulífinu en SA telja það bæði nauðsynlegt og skynsamlegt.
Vorið 2009 skrifuðu SA undir samstarfssamning við FKA - Félag kvenna í atvinnurekstri og Viðskiptaráð Íslands um að efla hlut kvenna í stjórnun íslensks atvinnulífs þannig að hlutfall kvenna í forystusveitinni verði ekki undir 40% árið 2013. Fulltrúar allra stjórnmálaflokka á Alþingi styðja samninginn en Creditinfo mun mæla árangur verkefnisins árlega.



















