Viðskipti
| mbl
| 15.1.2010
| 12:16
| Uppfært
12:37
Gríðarlegur hagnaður JP Morgan
Hagnaður bandaríska bankans JP Morgan Chase nam 3,27 milljörðum dala á fjórða ársfjórðungi, jafnvirði 410 milljarða króna.
Alls nam hagnaður bankans á síðasta ári 11,7 milljörðum dala, jafnvirði nærri 1500 milljarða króna en var 5,6 milljarðar dala árið 2008. Af hagnaðnum nú var 6,8 milljarðar vegna fjárfestingarbankastarfsemi
Hagnaðurinn á fjórða ársfjórðungi er fjórfaldur hagnaður bankans á sama tímabili á síðasta ári. Afkoman nú var betri en sérfræðingar á Wall Street höfðu spáð.
Tekjur bankans námu 25,2 milljörðum dala á síðasta ársfjórðungi.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















