Ekki rætt við sænskan fyrrum stjórnarmann í Kaupþingi
Tommy Persson, sænskur fyrrum stjórnarmaður Kaupþings segir í samtali við sænskan vefmiðil, að sérstakur saksóknari á Íslandi hafi ekki haft samband við hann. Persson segist hins vegar vera reiðubúinn að veita nefndinni upplýsingar verði eftir því óskað.
Tommy Persson sat í stjórn Kaupþings frá árinu 2002 fram til október 2008 þegar bankinn féll. Svenska Dagbadet sagði fyrir helgi, að væntanlega myndi Ólafur Hauksson, sérstakur saksóknari, fjalla um Persson og vísaði m.a. til þess, að bæði Sigurður Einarsson, fyrrum stjórnarformaður, og Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrum forstjóri bankans, hefðu réttarstöðu grunaðra í rannsókn saksóknaraembættisins á meintri markaðsmisnotkun bankans.
Norski viðskiptavefurinn e24.se hefur hins vegar eftir Persson, að hann hafi hvorki fengið spurningar frá íslenskum né sænskum stjórnvöldum um þátt sinn í viðskiptum bankans.
„Það er eitt og hálft ár frá því íslenska ríkið yfirtók Kaupþing. En ég hef ekki verið í sambandi við neinn fulltrúa íslenskra eða sænskra stjórnvalda eða nokkurs annars lands. Ég útiloka hins vegar ekki að það muni gerast en það bendir ekkert til þess," segir hann.
Persson segir, að það sé sjálfsagt og eðlilegt, að rannsókn fari fram á því sem gerðist í íslenska bankakerfinu. Sem fyrrum stjórnarmaður í Kaupþingi sé hann reiðubúinn til að veita upplýsingar til að varpa ljósi á þetta verði eftir því óskað.
Persson hefur áður sagt, að stjórn bankans hafi starfað á mjög faglegum nótum. Hann gagnrýnir hins vegar að stjórnin skyldi hafa tregðast við að flytja höfuðstöðvar Kaupþings frá Íslandi.
„Ísland er allt of lítið land fyrir þessa stóru banka. Og stór hluti af starfsemi þeirra fór fram í útlöndum. Hefðu höfuðstöðvarnar verið fluttar hefði bankanum að auki staðið til boða aðgangur að evrópskum björgunaraðgerðum, sem Ísland gat ekki boðið," segir Persson.



















