Nýir eigendur taka við Íslenskri erfðagreiningu
Gengið var í vikunni frá kaupum fjárfestingarfélagsins Saga Investments á Íslenskri erfðagreiningu af deCODE, fyrrum móðurfélagi þess. Íslensk erfðagreining mun áfram starfa undir nafninu deCODE genetics og selja vörur sínar og þjónustu, m.a. deCODEme erfðagreiningarpróf fyrir einstaklinga, deCODE Diagnostics greiningarpróf og vísindaþjónustu deCODE.
Í tilkynningu frá deCODE segir að ÍE muni í starfsemi sinni nota niðurstöður erfðarannsókna til að þróa vörur og þjónustu sem hafa það að markmiði að efla lýðheilsu.
Saga Investments LLC, er fjárfestahópur sem leiddur er af Polaris Ventures og ARCH Venture Partners, þekktum fjárfestum í Bandaríkjunum á sviði líftækni. Fyrirtækinu verður framvegis stjórnað af tveggja manna framkvæmdastjórn sem mynduð er af Earl „Duke" Collier, fyrrum framkvæmdastjóra hjá líftæknifyrirtækinu Genzyme Corporation, sem hefur tekið við starfi forstjóra, og Kára Stefánssyni sem er starfandi stjórnarformaður og yfirmaður rannsóknasviðs.
Rannsóknir ÍE byggja á erfða- og læknisfræðilegum upplýsingum um 500.000 aðila frá öllum heimshornum sem tekið hafa þátt í rannsóknum á vegum fyrirtækisins. Þar af eru um 140.000 Íslendingar sem lagt hafa fyrirtækinu lið undanfarin ár.



















