Viðskipti
| mbl
| 22.1.2010
| 10:31
75,6 milljarða krafa Goldman
Fjárfestingabankinn Goldman Sachs gerir alls 75 kröfur í þrotabú Kaupþings upp á samtals 75,6 milljarða króna. Þetta kemur fram í kröfuskrá Kaupþings sem birt var á lokuðu vefsvæði kröfuhafa bankans í morgun.
Gera má ráð fyrir að einhverjum kröfum sé marglýst. Til að mynda eru samtals 13 kröfur upp á 759 milljónir króna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















