Bílaleiga Flugleiða til sölu
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið falið að annast sölu á öllu hlutafé í Bílaleigu Flugleiða ehf. Bílaleigan hefur einkarétt á að nota og markaðssetja vörumerkið Hertz samkvæmt samningi við Hertz International.
Félagið rekur 9 þjónustustöðvar um land allt og hjá því starfa í dag 45 starfsmenn en yfir sumartímann nær starfsmannafjöldinn um 70. Áætlað er að Bílaleiga Flugleiða sé þriðja stærsta bílaleigan á íslenska markaðinum miðað við bílaflota, en síðasta sumar var hann um 1000 bílar.
Söluferli bílaleigunnar hófst formlega með birtingu auglýsingar í fjölmiðlum í dag og er opið öllum fjárfestum sem sýnt geta fram á eiginfjárstöðu umfram 500 milljónir króna og hljóta samþykki Hertz International. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans stefnir að því að ljúka sölunni um miðjan febrúar.



















