Hagnaður Google fimmfaldaðist
Hagnaður netleitarinnar Google á síðasta fjórðungi ársins 2009 nam 1,97 milljörðum dala, jafnvirði 252 milljarða króna, og fimmfaldaðist milli ára. Alls nam hagnaður Google á síðasta ári 6,52 milljörðum dala, jafnvirði 835 milljörðum króna, og jókst um 54% milli ára.
„Í ljósi þess, að efnahagur heimsins er enn varla farinn að rétta úr kútnum þá var þetta afar jákvæður endir á árinu," sagði Eric Schmidt, forstjóri Google. Sagði hann að mikil bjartsýni ríkti á möguleika netsins á árinu 2010 og að fyrirtækið muni fjárfesta í tækninýjungum, sem muni nýtast bæði notendum og viðskiptavinum og öllum veraldarvefnum.
Google sagði, að 13% aukning hefði verið á heimsóknum á auglýsingar á vefsíðum fyrirtækisins. Tekjur á ársfjórðungnum námu 6,67 milljörðum dala og jukust um 17%. Um 53% teknanna komu utan Bandaríkjanna.
Fram kom hjá Schmidt á fundi með fjárfestum, að Google ætlar að hætta að verða við kröfum kínverskra stjórnvalda um að ritskoða niðurstöður netleitar þar en það var skilyrði Kínverja þegar Google útbjó kínverska útgáfu af netleit sinni árið 2006.
Ástæðan fyrir þessu er að Kínverjar urðu nýlega uppvísir að netnjósnum, sem beindust gegn Google og fleiri fyrirtækjum.
Schmidt sagði að fyrirtækið ætti nú í viðræðum við kínversk stjórnvöld og fylgdi enn þarlendum lögum en innan skamms tíma yrðu gerðar tilteknar breytingar þar.



















