Viðskipti
| mbl
| 25.1.2010
| 7:21
| Uppfært
7:43
6.500 verður sagt upp hjá Ericsson
Sænska farsímafyrirtækið ætlar að fækka starfsmönnum um 6.500, að því er segir í tilkynningu frá félaginu. Hagnaður Ericsson dróst saman um 92% á fjórða ársfjórðungi en félagið kynnti uppgjör sitt í morgun.
Nam hagnaður Ericsson 314 milljónum sænskra króna á tímabilinu október-desember 2009 samanborið við 3,89 milljarða sænskra króna á sama tímabili 2008. Er þetta mun verri afkoma heldur en spáð hafði verið en sérfræðingar sem Dow Jones leitaði til spáðu að meðaltali 3,23 milljarða sænskra króna hagnaði.
Ericsson ætlaði að fækka störfum um fimm þúsund í samræmi við endurskipulagningu rekstrar sem kynnt var í janúar í fyrra en nú hefur verið ákveðið að fækka störfum enn frekar eða um 6.500.
Afkoman í heild
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin



















