Viðskipti
| mbl
| 25.1.2010
| 13:08
ESB rannsakar Rio Tinto
Framkvæmdastjórn ESB hefur hrundið af stað rannsókn á meintu ólöglegu samráði álframleiðendanna Rio Tinto og BHP Billiton. Rio Tinto er næststærsti álframleiðandi heims, og rekur meðal annars eitt álver hér á landi, sem staðsett er í Straumsvík. BHP er þriðji stærsti álframleiðandi heims. Þetta kemur fram hjá AFP.
Í tilkynningu framkvæmdastjórnarinnar segir að Rio Tinto og BHP hafi hugsanlega brotið reglur ESB um viðskiptahætti fyrirtækja. Um er að ræða samkomulag sem fyrirtækin gerðu sín á milli 5. desember 2009 um að deila með sér nýtingu á járngrýtisnámu í vestanverðri Ástralíu.
Rannsókn ESB snýr að „áhrifum samráðsins á heimsmarkað með járngrýti sem flutt er sjóleiðina,“ eins og það er orðað í tilkynningunni. Fram kemur að ekki ákvörðunin um að rannsaka málið hafi ekki byggt á sönnunargögnum um brot.

© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin